Pétursborg 26 -7 -2009
Eins og staðan er í dag geri ég lítið annað en telja peninga með  volgu Olgu nýja einkaritaranum mínum. Hér er sko alltílagi get ég sagt ykkur aumingjarnir ykkar. Já helvítis aumingjarnir ykkar... þið sem slóuð snillingana útaf borðinu - hentuð framtíðardrengjunum fyrir borð og eruð svo að tala um að þeir hafi sett allt á hausinn. Þið settuð sjálf allt á hausinn. Þegar þessir snillingar buðu þjóðinni uppí dans þá var ekki verið að bjóða uppí maraþondans. En þið steinláguð ... duttuð í það asnarnir ykkar. 100 milla hús. Tveir 20 millu bílar, sumarbústaður í Borgarfirði, utanlandsferðir -  krús í Karabíska. Og nú sitjið þið í súpunni og strákarnir ykkar eru farnir og koma aldrei aftur. Réttast væri að skella girðingu utan um helvítis skerið og setja hengilás á. Fyrir utan mætti hafa skilti sem á stæði - Hætta á aumingjasmiti. Eins og þið sjáið þá er frændi illur útí þjóðina sína, þ.e. fyrrum þjóðina sína því ég er búinn að skipta um ríkisfang. Núna er ég ríkisborgari í Ubekistan og er með second ríkisfang í Rússlandi. Og ég græði og græði og græði, á peningunum sem ég fór með frá Íslandi daginn fyrir hrun. Þið vitið það að sjálfsögðu ekki en hér upplýsist það. Ég hreinsaði út úr öllum mínum hvelfingum og bar í stórum töskum í Learjettið nokkrum dögum áður en Geir bað til guðs. Ég hef alltaf verið snillingur þegar kemur að fjármálum, ég var búinn að sjá þetta allt fyrirfram eða eigum við kannske að segja ég var búinn að setja þetta allt saman í gang á meðan þið voruð að taka myntkörfulánin ykkar. Nú fer ég að sinna henni volgu Olgu og ætla aldrei að láta heyra í mér framar. Vonandi kemur einhver og kaupir skerið og bjargar ykkur en það verður ekki ég.
Jóakim von arrgggand
Hef ákveðið að yfirgefa skerið fyrir full og allt með því að afsala mér ríkisborgararétti -  vil ekki láta bendla mig við þjóð sem fer svona með landsins bestu syni. Menn sem sáu tækifæri og nýttu sér þau í þágu lands og þjóðar eru nú hundeltir af gráðugum lýðnum - sve attann ... þá er nú betra að vera Rússneskur ríkisborgari
 Jóakim argi 
 Tortola  -  suðaustan 3 léttskýðja 3o° 
Ágætu landar ... ég nýtti mér tækifærið meðan frændi lá í andnauð eftir hangikjötsátið til að svindla mér inná bloggið hans.  Ég veit að þið hafið áhyggjur af þessum aurum sem hurfu eins og dögg fyrir sólu en það eru ástæðulausar áhyggjur. Seðlarnir eru vel geymdir og ég get lofað að þeim verður vel varið. Ekki vera vond við strákana okkar, þeir voru bara að gera það sem allir þráðu að gera, voru bara fljótari en næsti maður. Ég reikna með að þetta verði allt komið í stakasta lag hjá ykkur eftir svona tuttugu ár, þjóðin er fylgin sér og harðdugleg að borga það sem á hana er lagt á erfiðum tímum. Hreinlega þekkt fyrir dugnað. Ekki skemma greiðsluaðlaganir, framlengingar á lánum og fleira gott til að laga stöðuna. Allt gert fyrir ykkur til að létta aðeins undir á erfiðum tímum.  Ég hef hinsvegar ákveðið að slíta öll sambönd við landið mitt. Mun engu að síður koma í lax af og til og svo auðvitað ef einhver almennileg tækifæri gefast sem ég efast nú um að verði í minni tíð. Nú fjárfesti ég í Afríku og boy ó boy. Þar er sko gaman að athafna sig. Ódýrt vinnuafl - orð eins og mútur finnast ekki í þarlendum orðabókum.  
ra ra frá Jóakim von Súpertramp
Sjá upptöku af Silfri Egils á vef RÚV.
Á haustmánuðum hrundi stórveldið Ísland. Til að því sé nú haldið til haga þá er Íslenska þjóðin sögð með hamingjusömustu þjóðum í heimi, þjóð með stórmerkilegri sögu, reyndar í styttri kantinum, bestu sjávarútvegsstefnu sem fyrirfannst á byggðu bóli og fleira og fleira sem ekki er ástæða til að tíunda svo vel þekkt sem það er. Ekki lækkaði flugið þegar tekið var til alheimsfjármálin. Snillingar skutust út úr hverjum hól og nú skyldi skjóta Íslandi til æðstu metorða á stjörnum skrýddum frjálshyggjuhimni Hannesar og Friedmans. London, Kaupmannahöfn, Luxemborg, Jómrúareyjar, Tortola. Öllum þúfum smáum sem stórum velt við í leit að klinki, allt keypt sem á vegi varð og svo alltíeinu BÚMM - veislan á enda og skútan komin með slagsíðu. Þegar ljóst var að hverju stefndi spýtti almenningur í lófa og skundaði í mótmæli með búsáhöld sem barin voru í hinum margutalaða rímnafúnktakti og galopinn kjaftinn að vopni. Krafan var; ríkisstjórn Íslands í burt, Davíð úr Seðlabankanum, fjármálaeftirlitið í ný föt keisarans og kosningar í grænum hvelli. Hæ hó jibbíjei og jibbíjei, bráðum komin 25 apríl. Nýtt lýðveldi, nýtt Ísland nýtt þetta nýtt hitt. Jísús kræst, alltíeinu var eitthvað svo nýtt að vera til. Þá fyrst skildi ég svipinn á kínversku ungmennunum, bjartan, opinn svip hins kúgaða kínverska verkalýðs sem fann lausnina í búlduleitum ofreikingamanni og laumuperra. Þá skildi ég myndirnar af öllum ljóshærðu Gertrtrútunum og bláeigðu Aríastrákunum sem mændu opnum aðdáunaraugum á lausnarann- eineistinginn, laumugyðinginn, grænmetis- og amfetamínætuna Adolf Hitler. Nú er kreppa á Íslandi eins og var í Kína og Þýskalandi og fleiri stöðum og í beinu framhaldi verður allt svo nýtt. Jafnvel gamlir símastaurar verð sem nýir og syngja ættjararlög. Ég hef persónulega ákveðið að vera alveg nýr héðan í frá. Það þýðir í raun að ég mun lúsahreinsa af mér gamla lífið og stökkva um víðan völl endurreistur með bjartan svip eins og Kinversku ungmenninn á byltigarmyndunum. Ég ætla að byrja á því að fara í bankann minn á morgun og fá skuldabréfin sem tilheyra gamla mér og eru á mínu gamla nafni og láta setja þau í tætarann fyrir mig. Síðan renni ég við hjá þeim í Credidifo og læt eyða persónuupplýsingum um heldur fátæklegan feril minn á fjármálasviðinu. Jafnvel fara fram á að sjoppunni verði lokað í eitt skipti fyrir öll. Aldrei var ég beðinn um afnot af persónuupplýsingum um mig og því síður að þær gætu gengið kaupum og sölum. Það er spurnig hvort það ætti ekki að senda þeim reikning fyrir afnotunum. Hann þarna frá Írak hefur trúlega ekki verið á vanskilaskrá þegar hann fékk hundrað milljarða yfirdráttinn hjá Kaupþing á dögunum. Eða Jón þungarokkari þegar hann fékk lánið fyrir íbúðinni á Manhattan og Stöð 2. 
En hvað er ég að væla, allar vorar búksorgir eru fyrir bí -  nýtt Ísland, nýir símastaurar, nýr ég, nýr þú.  
Ekkert er ómögulegt; allt. 
Það er komin ný ríkisstjórn. Á endanum sigraði búsáhaldabúggíið og stjórn lagði niður störf. Breytinga var þörf svo mikið er víst. Stjórnin sem nú hefur ríkisforráð ætlar að taka til hendinni og vonandi þorir hún að standa við stóru orðin. Jóhanna er traust manneskja. Trúverðuleiki hennar sem stjórnmálamanns er hafinn yfir allan vafa en meira þarf til. Það er margt gott í hinum nýja sáttmála sem vinna á eftir fram að næstu kosningum en vel skráðir sáttmálar ríkistjórnaflokka með tilheyrandi loforðaglamri hafa sést áður þannig að spurt verður að leikslokum. Eitt vekur athygli mína. Það stendur ekki eitt einasta orð í sáttmálanum um kvótamálið margumtalaða, sem er fyrir löngu komið á tíma, enda um að ræða eitt mesta óréttlætismál sem yfir þjóðina hefur verið látið ganga fyrr eða síðar. Mál sem lagði grunninn að þeirri ógnarstöðu sem þjóðin glímir við þessa dagana og mun þurfa að glíma við næstu ár og áratugi. Það er full ástæða að nefna að núverandi sjávarútvegsráðherra var einn af þeim sem stóð að þjófnaðinum.  Eitt af brýnustu málum þessarar stjórnar og þeirrar sem taka mun við eftir næstu kosningar er að fá þjóðina með sér í erfitt endurreisnarstarf. Að endurheimta auðlindina og koma í verð með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi er forsenda þess að þjóðin færi þær fórnir sem nú liggur fyrir að þurfi að færa. Það sem hinsvegar dregur úr bjartsýni minni um að raunverulega verði tekið til hendinni er valdgráðugt flokkakerfi sem lætur valdið ekki af hendi mótþróalaust. Gott dæmi er flokkurinn sem næstum því hvarf en er nú risinn úr öskustónni og farinn að veifa halanum eina ferðina enn. 
En nú reynir á
Gangverk svindlsins
Markaðsmisnotkun falskaupmanna gengur út á að ráðskast með mat á eignum (gangvirðið sbr. lög 3/2006 um ársreikninga). Þetta er hreint svindl (ólöglegt) framkvæmt á máta sem lítur út fyrir að vera löglegur þar sem miðað er við svokallað markaðsverð og endurskoðendur og bankar kvitta upp á.   
Viðskipti með hlutabréf (eða fasteignir eða kvóta) eiga sér stað á einhverju gengi sem tekið er sem markaðsvirði sem er lagt til grundvallar sem gangvirði í efnahagsreikningi (ef aðilar eru skyldir þá verður að meta gangvirðið með öðrum aðferðum). 
Svindlkerfið er svona: 
Leynt eignarhald falskaupmanns til að blekkja utanaðkomandi (og veita endurskoðendum skálkaskjól) sem eru látnir halda að um óskylda aðila sé að ræða 
Ofmat á eignum byggt á meintu markaðsvirði (sem er tilkomið vegna eigin viðskipta eigenda) sem svo er tekið sem gangvirði á eignum á efnahagsreikningi 
Endurskoðendur samþykkja (eða ákveða) matið (þ.e.a.s. nota markaðsverð sem viðmið fyrir gangvirði) þótt það sé ekki rétt þar sem um skylda aðila var að ræða 
Bankar taka matið gilt sem gangvirði og veita lán gegn veði í viðkomandi eign 
Bankar bera tapið sem er falið í bókhaldi eða fara á hausinn þegar upp kemst að eignirnar voru ofmetnar. Lítið fæst upp í kröfur enda efnahagsreikningur og hagnaður ýktur og innistæðulaus.
Þetta hefur ekkert með galla markaðshagkerfis að gera. Þetta hefur allt með markaðsmisnotkun að gera. Eftirlitsaðilar (endurskoðendur, bankar og FME brugðust) og löggjöfin (sem er alþjóðleg) er of slöpp. Verja þarf markaðshagkerfið betur fyrir svona svindli]]></description>
            <description><![CDATA[Ég trúi á heilagan Mammon, skapara ómældra auðæva. 
Ég trúi á einkavæðingu, mótþróalausa afhendingu þjóðarauðs og létta spillingu
Ég trúi á flokkinn minn, 
leiðtogann minn, 
samfélag útvalinna fjármálasnillinga, 
fyrirgefningu smá-meðal og stórra yfirsjóna, 
upprisu fallinna fjármálamógúla  
og eilíft brask. 
YEN-MEN 
Það hafði flotið lengi áfram þetta far,
flotið yfir margar slæmar grynningar,
margir snjallir höfðu stýrt
og það hafði oft verið dýrt
að gera gamla dallinn út.
Það var kominn lúmskur leki að lestinni,
lamað allt um borð og lent í rassgati,
í flækju komin nót og blökk,
undiraldan þung og dökk
daginn þegar skipið sökk.
Og ég sver að upp í brú
þar stóð enginn stýrið við
stjórnlaust skipið sigldi á hlið.
Þeir höfðu stolið öllu ætu úr búrinu,
rottur höfðu flúið burt af skipinu,
skipstjórinn fékk skömm í þökk,
og í sjóinn loks hann stökk 
daginn þegar skipið sökk.
Þessi sjóferð hafði verið löng og ströng
í óratíma hafði stefnan verið röng
þeir sem flæktu nót og blökk
fengu að taka heljarstökk,
daginn þegar skipið sökk.
Mannakorn  Í ljúfum leik 1985 
Ágætu bloggvinir. Í tilefni þess að ég hef með góðu komið Kimma frænda á hæli fyrir auðmenn í afneitun og þar með fengið á ný aðgang að mínu eigin bloggi finnst mér viðeigandi að afrita afar athygliverða grein úr bandarísku viðskiptatímariti um nýja kynslóð viðskiptamanna. 
Í leiðinni vil ég vekja athygli á   www.nyttlydveldi.is   Hvet ég alla að skoða síðuna og rita nafn sitt á undirskriftalistann ef hugurinn býður. 
Það að kjósa aftur er skammgóður vermir ef ekki verður áður tekið til í garðinum og illgresið fjarlægt sem allt er að kæfa. Flokkarnir sem sitja í stjórnarandstöðu og telja sig þess umkomna að snúa öllu á betri veginn, fái þeir sæti við háborðið eru alveg jafn vindlausri og þeir sem sitja við stjórnvölin. Þingið er handónýtt og stjórn landsins í sárum. Ef takast á að uppræta spillinguna sem hefur gegnumsýrt íslenskt þjóðlíf allof lengi og sett landið á hausinn, gerist það ekki með því að sjóða sama grautinn eina ferðina enn. Það verður að endurreisa lýðræði á Íslandi. 
NÝ KYNSLÓÐ viðskiptamanna; siðblindir (Psychopatar: kallað í réttarkerfinu geðvilla) spretta upp í viðskiptalífinu víða um heim ef marka má grein í viðskiptablaðinu "Fast Company". Greinin heitir "Is your Boss a Psychopath?"  Þar er vitnað í 71 árs gamlan prófessor við UBC háskólann í Vancouver Kanada, Robert Hare. Hann er þekktur glæpasálfræðingur og hefur stundað rannsóknir á nýjum tegundum glæpa, viðskiptaglæpum. Hare hefur unnið náið með FBI og lýsir hann forstjórum á borð við Enron og World Com, hinum dæmdu, Bernard Ebbers og Andrew Fastow, sem siðblindum, kaldrifjuðum einstaklingum. "Þeim er sama um tilfinningar annarra. Í þessum mönnum finnst hvorki sektarkennd né eftirsjá. Þeir sjá ekki sársaukann sem að þeir hafa valdið öðru fólki og sjá ekki að þrátt fyrir að einstaklingar missi aleiguna hafi það haft eitthvað með siðleysi þeirra sjálfra að gera." Siðblindir raða svo öðrum "veikum" einstaklingum svo sem starfsmönnum, eiginkonum og kærustum í kringum sig. Alltaf er það fólk með lágt sjálfsmat. "Fólk á að haga sér vel og af virðingu gagnvart þeim. Leikarahæfileikar þeirra eru einstakir og þeir hrífa okkur með sér til þess eins að hafa okkur að leiksoppum," segir Hare, "þeir eru nefnilega svo "likable", Psycopatarnir! Þeir setja upp grímur og laða að sér fólk eins og í dáleiðslu. Þeir eru hjartalausir tækifærissinnar sem eins og listamenn laða fram myndir sem eiga sér enga stoð í raunveruleika heilbrigðs fólks. Þeim leiðast rútínur, þurfa stanslausa örvun og að eignast fleiri fyrirtæki, tæki og tól sem koma þeim hraðar en öllum öðrum á toppinn. Tilgangurinn er annar en okkur virðist í fyrstu nefnilega sá að ganga frá öðrum í leiknum, að sigra "leikinn". Siðleysinginn er nefnilega ekki í viðskiptum, hann er í leik. Mesta nautnin er að ná valdi á öðru fólki oft til þess eins að svívirða það síðar. Það er nautn að niðurlægja annað fólk, jafnvel þá sem að þeir þykjast elska. Þeir elska ekki en þrífast á illskunni og hatrinu í sér. Hare skilgreinir nýja kynslóð manna í viðskiptaumhverfi 21. aldarinnar. "Þeir eru snöggir, njóta almenningshylli en búa yfir eyðandi, rótlausum, samviskulausum, siðlausum eiginleikum sem koma þeim áfram í viðskiptum." Lygar, bakstungur, svik, undirförli, kvenfyrirlitning, sjálfhverfa og illska hafa engar merkingar í þeirra hugarheimi aðrar en þær að komast áfram á toppinn og eignast meira og ná lengra í viðskiptum. Þeir kaupa starfsmenn og konur og eru samkvæmt "Fast Company" áhrifamiklir í því... þeir ná gríðarlegum árangri í að sannfæra hinn auðmjúka lýð um að þeir séu snillingar, að þeim sé treystandi og að þeir vinni af góðmennsku en ekki græðgi." 
Undirlægjurnar
Lögfræðingar, endurskoðendur, forstjórar sem og stjórnarformenn, stjórnir og fjölmiðlamenn leggjast undir siðblindingjana eins og auðmjúkir þjónar. Það reynir verulega á samfélags- og siðferðisþroska þeirra sem ákveða að vinna fyrir, búa með eða giftast slíkum mönnum. Martha Stout sálfræðingur hjá Harvard Medical School sem rannsakað hefur útmörk mannlegrar hegðunar segir að það sé frísku fólki ekki tamt að trúa að til séu menn svona langt frá því sem heilbrigður maður kallar að vera "góð manneskja". Að einhver geti villt svona á sér heimildir, verið svona "illræmdur" en samt verið opinberlega virtur er óhugsandi frísku fólki. Spennan og leikurinn hjá siðleysingjanum snýst um ánægjuna yfir því að særa og skemma fyrir öðrum. Hann notar fyrirtækið sem tæki til þess að mata sjúkdóminn en hefur sjaldnast hagsmuni fyrirtækisins sjálfs í huga. Það skiptir ekkert annað máli en "illmennið" í honum sjálfum sem öskrar á spennu og viðskiptasigra. "Láttu ekki hól og smjaður þeirra virka djúpt á þig. Þeir eru að leika á þig. Þegar þeir setja á þig titil (svo sem framkvæmdastjóri, vaktstjóri, grænmetisyfirmaður, sölustjóri, fjármálastjóri, símastjóri eða bílstjóri) láttu það ekki á þig fá það er engin innistæða önnur en sú að þú þrælir þér út fyrir þá áfram. Ef vald þeirra gengur út yfir það sem þér finnst heilbrigt, forðaðu þér. Taktu aldrei þátt í að mata sjálfhverfu og illsku siðleysingjans. Ef þú óttast manninn, ekki rugla því saman við virðingu. Komdu í veg fyrir persónulegt heilsufarstjón og forðaðu þér en mundu að hann (psychopatinn) mun aldrei þola að sjá að þér líði vel hafir þú sýnt þann styrk að yfirgefa hann eða fyrirtækið. Hann mun gera allt til þess að rústa mannorði þínu," segir Martha. Svona menn eru víða í viðskiptalífinu. Þú vinnur jafnvel fyrir þá eða ert svo óheppin að vera gift einum. Börn alkóhólista þurfa að vera sérstaklega á varðbergi því sjálfsmat þeirra er oft á tíðum brenglað. Dæmt fólk eða ólánsfólk leitar að upphefð hjá svona psychopötum vegna eigin vanmáttar. Psychopatar virka svo góðir og klárir og með því að drepa samkeppnina og stela og svíkja verða þeir oft efnamiklir. Sem dæmi um kalrifjaðan siðblindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma sögunnar. Rockefeller opinberaði sjúklegt ástand sitt með orðunum: "God gave me my money."  ]]></description>
Framtíð okkar og ekki síst afkomenda okkar stendur og fellur með næstu skrefum
http://www.nyttlydveldi.is/
Það er ljótt að fara svona með gamla fólkið. Ég hlusta ekki á niðurskurðakjaftæðið þegar kemur að þessum málaflokki. Það er fullkomlega siðlaust að láta fjármálasukkið koma niður á þeim sem minna mega sín. Jóhanna stattu við stóru orðin. 
Ráðherra kynningamála í stjórn Jóakims von Islandi