Færsluflokkur: Tónlist

Annað kvöld verður talið í AIM festival 2007

Það er skemmtileg helgi framundan hjá mér. Alþjóðlega tónlistarhátiðin á Akureyri, AIM festival 2007 www.aimfestival.is  hefst annað kvöld. Það verður blúsað og rokkað á þremur stöðum í bænum og það er við hæfi að mörlandinn hefji leikinn. Ég fæ að vera með annað kvöld því Blús Kompaníið ásamt Hrund Ósk Árnadóttur kemur fram á 1929 ásamt Mó sem er Akureyrískt band sem leikur íslensk þjóðlög í rokkaðri útfærslu.  Á föstudagskvöld verður annarsvegar mikil jazzveisla, kúbuskotin og aðalnúmerið er kúbanski píanóleikarinn Hilario Duran ásamt hljómsveit og  Tómas R ásamt stórbandi hitar upp fyrir kappann. Á öðrum staði í bænum verður þýska útgáfan Morr music með sérstakt kvöld með innlendum og erlendum böndum, þar á meðal Benna Hemm Hemm sem nýlega gerði samning við útgáfuna. Laugardagskvöldið verður svo tileinkað Fernandez Fierro 12 manna stórkostlegu tangóbandi frá Argengtínu. Ég hef fylgst með þeim um nokkra ára skeið og þvílik hljómsveit. Svo lokum við hátíðinni á sunnudag með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, en einleikari með henni verður harmonikkusnillingurinn Tatu Kantoma. Það spáir bongóblíðu um helgina á Norðurlandi þannig að það er upplagt að heimsækja okkur norður, hlusta á tónlist frá öllum heimshornum, grilla, fara í sund og fá sér Brynjuís.

síjú

 


Hvenær verð ég spurður?

Tónlistarmenn eru flytjendur og höfundar, hvorugur getur án hins verið. Reyndar eru höfundar oft flytjendur að eigin efni en þó er hitt algengara höfundar þurfi flytjendur að tónsmíðum sínum. STEF hefur séð um höfundrréttarmál en FÍH um réttindi flytjenda. Einn allra þekktasti lögfræðingur landsins sem skoðaði flytjendarétt fyrir mig fyrir nokkrum árum sagði mér blákalt að réttindamál flytjenda væru á steinaldarstigi. Ég held að síðustu fréttir um fyrirtækið tonlist.is segi ofurlitla sögu af stöðu flytjenda.

Stefán Hjörleifsson sem stofnaði tonlist.is var styrktur af hagsmunasamtökum flytjenda og höfunda til að koma tonlist.is á koppinn en seldi svo afkvæmið Senu fyrir væna fúlgu og sjálfan sig með. Ég hef oft spurt mig að því hvernig það megi vera að ég sé inná þessum grunni með megnið af því efni sem ég hef flutt, án þess að ég hafi nokkurn tímann gefið leyfi fyrir slíku. Svörin sem ég fékk þegar ég fór að efast um að rétt hafi verið staðið að málum voru þau að yfirráð útgefanda yfir flutningsrétti á lögunum gæfu honum rétt til að falbjóða mig á vefnum. Þetta sé síðan allt samþykkt af stéttafélaginu mínu á þeim fosendum að verið sé að búa til gagnagrunn sem nýtast eigi öllum hagsmunaaðilum. Hafi þessi hugsun verið það sem þetta átti að snúast um þá er sú forsenda fokin út um gluggann með sölu vefsins til SENU. Þess utan tel ég afar vafasamt að það sé hægt að ákveða án samráðs við mig að tonlist.is bjóði uppá afnot af mér í mánaðaráskrift, að tonlist.is geti gefið mig í fríu niðurhali, eins og hefur gerst hvað eftir annað ef tilefni hefur verið til eins og afmæli fyrirtækisins og fleiri stórviðburðir. Ég hef aldrei samþykkt neitt af þessu, reyndar aldrei verið spurður, sem er svo sem ekki nýtt í þessum bransa.  Þegar SENA ákvað á sínum tíma að selja disk með SS pylsupakka þá var enginn spurður, þegar lög af Mannakornadiskum hafa verið sett á hina og þessa safndiskana með einkennilegum nöfum, þá er enginn spurður,  þegar jólaplata Brunaliðsins Með eld í hjarta breyttist í diskinn 11 jólalög, var enginn spurður.

Ég hef ásamt félaga mínum Magnúsi Eiríkssyni varið undanförnum árum í að fá einhverja niðurstöðu í réttindamál okkar. Sú ganga  gengur hægt en gengur þó. Ég fagna umræðunni sem átt hefur sér stað að undanförnu og hvet til að henni sé haldið áfram af fullum þunga. Yfirburða staða eins fyrirtækis á viðkvæmum og litlum markaði er vandmeðfarið vald og leiðir því miður til misnotkunar. Tónlistarmönnum er mismunað eftir því hvar þeir eru skráðir með sitt efni, stjörnugjafir á tonlist.is er bara eitt lítið dæmi um slíka misnotkun.


Ölæði, brjálæði

Mér er sagt að molikúl alkóhóls sé furðulegt útlits, á eftir að skoða mynd af því en kemur mér satt best að segja ekkert á óvart. Allavega verður einstaklingur sem hefur innbyrt vel af vímugjöfum furðulegur bæði í hegðun og hugsun. Ég hef þó nokkra reynslu af inntöku gleðigjafa af ýmsum sortum. Hló og skemmti mér í fyrstu en svo kárnaði gamanið, stjórnleysi drykkjusýkinnar tók yfir og ég var hættur að ráða ferðinni, sem ég trúlega réð aldrei. Áhrif alkóhóls og annarra vímugjafa á hausinn eru þessi: Eftir inntöku í miklu magni, geðfatlast einstaklingurinn um stund. Kemur það fram með ýmsum hætti sem ekki er ástæða til að tíunda. Ef einstaklingurinn er ofnæmur endar gamanið gjarnan með varanlegri geðfötlun eða dauða. Neysluhóparnir eru þeir ofnæmu og svo hófneytendur. Benda má á að áhrif áfengis og dóps á taugakerfið eru eins hjá báðum neysluhópunum.

Læt fylgja með kvæði eftir vin minn og samstarfsfélaga Magnús Eiríksson. Braginn er að finna á samnefndum diski sem við hljóðrituðum fyrir nokkrum áratugum.

Í ljúfum leik

Liggur einn og yfirgefinn
einhvers staðar útí horni
orðinn mjög af elli blakkur
áfengi og reyk

Var hann þó á lífsins morgni
oft í fylgd með góðum drengjum
glumdi rokk í silfurstrengjum
allt í ljúfum leik

Magnaður með rafmagnskrafti
menn gat látið halda kjafti
yfirgnæfði allt og alla
allt í ljúfum leik

Sé ég ennþá káta karla
koma heim og standa varla
en það er bara í minningunni
allt í ljúfum leik

Tóku tvísöng vældu hlógu
teygðu langt á typpi mjóu
drukku reyktu duttu dóu
allt í ljúfum leik


mbl.is Ölæði þolanda og geranda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband