Volga Olga

Pétursborg 26 -7 -2009

Eins og staðan er í dag geri ég lítið annað en telja peninga með  volgu Olgu nýja einkaritaranum mínum. Hér er sko alltílagi get ég sagt ykkur aumingjarnir ykkar. Já helvítis aumingjarnir ykkar... þið sem slóuð snillingana útaf borðinu - hentuð framtíðardrengjunum fyrir borð og eruð svo að tala um að þeir hafi sett allt á hausinn. Þið settuð sjálf allt á hausinn. Þegar þessir snillingar buðu þjóðinni uppí dans þá var ekki verið að bjóða uppí maraþondans. En þið steinláguð ... duttuð í það asnarnir ykkar. 100 milla hús. Tveir 20 millu bílar, sumarbústaður í Borgarfirði, utanlandsferðir -  krús í Karabíska. Og nú sitjið þið í súpunni og strákarnir ykkar eru farnir og koma aldrei aftur. Réttast væri að skella girðingu utan um helvítis skerið og setja hengilás á. Fyrir utan mætti hafa skilti sem á stæði - Hætta á aumingjasmiti. Eins og þið sjáið þá er frændi illur útí þjóðina sína, þ.e. fyrrum þjóðina sína því ég er búinn að skipta um ríkisfang. Núna er ég ríkisborgari í Ubekistan og er með second ríkisfang í Rússlandi. Og ég græði og græði og græði, á peningunum sem ég fór með frá Íslandi daginn fyrir hrun. Þið vitið það að sjálfsögðu ekki en hér upplýsist það. Ég hreinsaði út úr öllum mínum hvelfingum og bar í stórum töskum í Learjettið nokkrum dögum áður en Geir bað til guðs. Ég hef alltaf verið snillingur þegar kemur að fjármálum, ég var búinn að sjá þetta allt fyrirfram eða eigum við kannske að segja ég var búinn að setja þetta allt saman í gang á meðan þið voruð að taka myntkörfulánin ykkar. Nú fer ég að sinna henni volgu Olgu og ætla aldrei að láta heyra í mér framar. Vonandi kemur einhver og kaupir skerið og bjargar ykkur en það verður ekki ég.

Jóakim von arrgggand

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

.....já, það fer lítið fyrir "peningalyktinni í Eyrarlandsveginum", aðeins ilmur af þessum fáu krónum sem ég flutti yfir á þá "gömlu", auk þess sem ég lét henni eftir "nokkrar eignir", ég er svo klár.

Um hvern er annars verið að tala, þarf ekki að siga Evu Joly á þetta   

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 12:36

2 Smámynd: Pétur Steinn Sigurðsson

Pálmi slitnaði strengur hjá þér???

Pétur Steinn Sigurðsson, 25.7.2009 kl. 13:42

3 Smámynd: Heimir Tómasson

Kimi minn, ég held að það væri vissara að flytja til Langtíburtistan, mér skilst að Pútín og félagar séu eitthvað blankir og ætli að reyna að nurla saman einhverjum krónum með því að taka svona kalla eins og þig og kreista. Og ég er nokkuð smeykur um að þú myndir þurfa að finna upp spánýjar aðferðir til að sinna Volgunni á eftir, því sú gamla væri sennilega fyrir bý.

Heimir Tómasson, 29.7.2009 kl. 04:00

4 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

halló strákar - ekki bendla mig við þetta - eina ferðina enn hefur ofurdílerinn hann Jóakim sem er víst eitthvað skyldur mér komist inná síðuna mína. Annars ber hann sig vel kallinn - á nóg af aurum sem gerir hann smáhamingjusaman.

Pálmi Gunnarsson, 31.7.2009 kl. 19:04

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 4.8.2009 kl. 23:09

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Komdu sæll Jókim, þú ert rétti maðurinn, átt sem betur fer kvóta og styður að sjálfsögðu kvótakerfið eins og aðrir sannir Vopnfirðingar.Þú ert minn maður, ekki einhver gjaldþrota aumingi sem kennir öðrum um allt illt.En getur það verið að þúhafir skroppið til landsinsfyrir um hálfum mánuði, mér fannst ég sjá þig á bryggjunni á Vopnafirði, eða varst það þú sem varst á nýja Róvernum fyrir neðan Syðri-Vík, sem tekinn var út úr þyrlunni sem lenti þar.Það er ekki ofsagt um ykkur Vopnfirðinga, þið hafið alltaf verið lagnir við aurana, eins og veiðiskapinn og kunni að græða á slíku þó þið kunnið líka að barma ykkur eins og sönnum búmönnum er lagið, og styðjið að sjálfsögðu VG-Samfó, eins og sönnum útrásrvíkingum er tamt.Gangi þér vel að græða.

Sigurgeir Jónsson, 7.8.2009 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband