Hallgrímur þó!! nú er öndin sár; sniff sniff - erda frá Kólumbíu Mína?

Ísland er stjórnlaust, því enginn því stjórnar
Ísland er fleki af dýrustu gerð
Ísland er landið sem Flokkurinn fórnar
Ísland á reki í sjónum þú sérð

Ísland í forsetans orðanna skrúði
Ísland sem bankana auðmönnum gaf
Ísland sem sonanna afrekum trúði
Ísland er land sem á verðinum svaf

Íslensk er þjóðin sem allt fyrir greiðir
Íslensk er krónan sem fellur hvern dag
Íslensk er höndin sem afvegaleiðir
Íslensk er trúin: "Það kemst allt í lag"

Íslensk er bjartsýna alheimskuvissan
um íslenskan sigur í sérhverri þraut
Íslensk er góðæris átveisluhryssan
sem íslenskan lepur nú kreppunnar graut

Ísland er landið sem öllu vill gleyma
sem Ísland á annarra hlut hefur gert
Íslenska þjóð, þér var ætlað að geyma
hið íslenska nafn sem þú hefur nú svert

Íslandi stýra nú altómir sjóðir
Ísland nú gengur við betlandi staf
að Íslandi sækja nú alls konar þjóðir
Ísland er sokkið í skuldanna haf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.11.2008 kl. 02:58

2 Smámynd: Landi

Ég fékk aleg tár í augun og stóru handklæði ég þurfti að þurka mér með,sniff sniff.

Burt með  sem allra yrst og vonandi kemur hann aldrei aftur.

Bra ra

Landi, 21.11.2008 kl. 10:43

3 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Hverja kusud tid i sidustu, naestsidustu og kosningunum tar adur og jafnvel tar adur?

Folkid i landinu hefur valdid, hverja teir vilja inn a Altingi  og til ad stjorna landinu.

Hverjir verda kjornir a Altingi naest  ?

Guðrún Magnea Helgadóttir, 21.11.2008 kl. 10:54

4 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Hallgrímur hittir naglann...

Ævar Rafn Kjartansson, 21.11.2008 kl. 12:55

5 Smámynd: Tryggvi Hübner

Ja, mikill assgoti. Ég verð að segja það.

En það er nú bara mín skoðun.

TH 

Tryggvi Hübner, 21.11.2008 kl. 15:32

6 Smámynd: Sverrir Einarsson

Sorglegt en satt.

Á  disk ( þá meina ég geisladisk) með þetta ekki seinna en í gær fyrir hádegi.

Landslið tónlistarmanna leikur undir og Pálmi syngur af sinni alkunnu snilld.

Ekki neina "hátíðarútgáfu" takk.

Sverrir Einarsson, 21.11.2008 kl. 16:13

7 Smámynd: Sævar Finnbogason

Ég mátaði þetta við lagið, alveg rúmlega 3 vasaklútar í stórri útsetningu í það minnsta.

Sævar Finnbogason, 21.11.2008 kl. 20:05

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ég veit ekki hvort ég á ad hlaegja eda gráta. Geri bara baedi.  bra bra Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 22.11.2008 kl. 09:33

9 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

.....

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 22.11.2008 kl. 12:14

10 Smámynd: Heimir Tómasson

Snilld. Og svo satt.

Heimir Tómasson, 23.11.2008 kl. 01:38

11 Smámynd: Heiða  Þórðar

Snilld og takk

Heiða Þórðar, 23.11.2008 kl. 17:37

12 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk takk fyrir mig elsku Öndin mín  Sleepingog góða nóttina minn kæri

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.11.2008 kl. 00:11

13 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Blessaður, bra! Þetta er mergjaður texti hjá Hallgrími. Ansi kaldur og napur en hann er svo assgoti sannur! Sannleikurinn getur verið það nefnilega svo hrikalega vondur bara. Við viljum oft ekki sjá hann. Þannig er það með marga í dag. Eins og skáldið sagði: "Upp, upp mín sál og allt mitt geð.......".

Sigurlaug B. Gröndal, 24.11.2008 kl. 10:09

14 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Já BRA BRA...................... hvaða lag á ég að nostra við þennan texta.???????

 Segjum okkur öll úr Davíðs flokki            sem erum í honum BRAAAA BRAAAAAA

Erna Friðriksdóttir, 24.11.2008 kl. 16:16

15 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Fjandi gott - og svo satt

Heimir Eyvindarson, 24.11.2008 kl. 22:55

16 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 25.11.2008 kl. 00:03

17 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Heyrðu, Pálmi... geturðu ekki sungið þetta inn á band (eða hvað sem notað er nútildags)? Senda svo út og suður í .mp3 til almennrar spilunar á mannamótum s.s. Austurvelli og Háskólabíói og slíkum stöðum?

Lára Hanna Einarsdóttir, 25.11.2008 kl. 02:46

18 identicon

Mjög gott og hverju orði sannara, textinn eða ljóðið er gargandi snilld !

Steinn Skaptason (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 04:29

19 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þetta er sorglegur texti...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.11.2008 kl. 18:27

20 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Svona á að gera það

Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.12.2008 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband