Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Af Búhssum og Balsebússum

Eftir að hafa horft á þátt um Jesús Búðirnar í sjónvarpinu í gærkveldi, þá datt mér í hug að henda eftirfarandi kafla úr sögu sem ég er með í tölvunni í vinnslu  -  þessar Jesúsbúðir eru austfirskar.

II

Ég fékk snemma áhuga á Guði, Jesús, dýrðlingum og Maríum. Fyrstu alvarlegu kynni mín af himnafegðunum voru þegar móðir mín fyrir tilstilli Bergþóru Ásgrímsdóttur, úr hvítasunnusöfnuði þorpsins, sendi mig í sunnudagaskóla þar sem messað var yfir okkur um himnaríki og helvíti og okkur syndugum krakkaskrílnum gefnar litlar snotrar bíblíumyndir í lok hverrar messu. Mér fundust þessar myndir alltaf dálítið fyndnar, fallegt fólki í hreinum hvítum kyrtlum að strá pálmalaufblöðum um sólstafateiknaðar götur og torg, skeggsnyrtir hjarðmenn með langa stafi, þrifaleg lömb og drifhvítar dúfur pössuðu illa við grámygluna og fótrakann í Útsveit. Bergþóra hvítasunnukona var kapítuli út af fyrir sig og átti alla mína athygli. Þessi hundrað og þrátíu kílóa kona hafði snúist í einu vetfangi til trúar.  - Guð laust mig auman syndarann á milli eyrnanna og sendi mér elskhugann eina og sanna til að verma sálina;  þrumar hún yfir mér yfir rjúkandi kaffibolla í eldhúsinu heima.  -  Þegar ég tók við honum í sundlauginni um árið koma hann til mín í dúfulíki og hreinsaði mig að innan sem utan; -  Diddi guðsmaður bróðir hennar sá um niðurdýfinguna og gekk hart fram, ákveðinn í að færa bersyndugri systur sinni nýjan mann. Viðstaddir skírnina sögðu að það hefði þurft að blása lífi í Bergþóru eftir niðurdýfinguna. En dúfan kom og Bergþóra gekk í það heilaga í annað sinn.     

Bergþóra stingur uppí sig stórum kandísmola,  - minn blessaði frelsari gaf mér lausn frá öllum mínum syndum stórum og smáum. Ég sé að mamma á erfitt með að halda aftur af sér þar sem hún hnoðar deig í lummur.  Þú varst nú varla svo slæm Bergþóra mín að það hafi staðið í honum Jésús að hreinsa þig;  Bergþóra hrekkur í einni svipan uppá háa séið,  - ekki slæm, ekki slæm!!  kandísfreyðandi munnvatnið frussast í allar áttir -  ég var svo syndug að það hefði orðið erfitt fyrir mig að fá inngöngu í helvíti; ég var kvalinn dag og nótt af öllum þeim verstu löstum sem til eru og hugsanir mínar voru rotnari en hákarlsbeitan hjá Stjána á Súðinni.  Bergþóra stendur með erfiðismunum upp frá borðinu og með upplyftum höndum er skipt um tóntegund;  - en nú er ég hrein eins og nýfallinn mjöll fyrir elsku Jésús sem læknar og græðir, hrein mey fyrir fallega frelsarann minn, halelúja, halelúja, þökk sé þér góði Jesús, minn elskaði unnusti á himnum, halelúja. Mamma djöflast á deiginu eins og hún eigi lífið að leysa og ég sé að hún skemmtir sér.  Heldur þú að Jesús hafi verið svartur, svartur eins og Satan!  Ég veit ekki hvað fékk mig til að láta þetta út úr mér og hefði ég betur látið það eiga sig. Bergþóra horfir á mig um stund, það er eins og hún nái ekki alveg spurningunni. Svo gómar hún mig eldsnöggt með feitri krumlunni og lyftir mér upp og yfir borðið. Hún heldur mér svo nálægt sér að ég sé stíflaðar svitaholurnar á þrútnu andlitinu og eldrauð, æðasprungin augun lýsa af ofsa. Fýlan útúr henni ætlar mig lifandi að drepa og mér verður skyndilega óglatt.  Balsebúb og hans svörtu satansenglar tala í gegnum þig andskotans auminginn þinn og hórkrógi. Svo skellir Bergþóra mér niður þannig að ég enda á hnjánum fyrir framana hana. Hún heldur mér niðri með annarri krumlunni sem er grafinn í öxlina á mér en með hinni bendir hún til himins  - Jesús læknar, hans heilaga orð þvær syndir okkar og þínar líka Sveinn svarti andskoti,  elsku Jesús þvoðu af honum sálina, settu hann á suðu svo hann endi ekki í vistinn hjá Balsebúb sem væri reyndar alveg mátulegt á hann, gerðu það fyrir mig að hreinsa Svein djöful af syndinni. Og  líka hana Stínu af syndinni sem bjó til Svein andskota. Ef hún Stína hefði ekki verið með brókarsótt þá væri ég ekki hér að biðja þessum litla djöfli griða. En hún Stína er vinkona mín svo góði Jesús komdu nú með þvottapokann þinn og þvoðu Svenna að framan og aftan, að innan og utan í Jesús nafni amen - segðu amen andskotinn þinn -  Bergþóra slær mig utan undir.  Mamma stöðvar Bergþóru áður en ég fæ annað högg  - hingað og ekki lengra Bergþóra, svona lætur þú ekki við hann Svein sem hefur alltaf verið góður við þig, hættu .þessu eins og skot.  Við þetta inngrip móður minnar er allt loft úr Bergþóru sem hlammar sé niður við eldhúsborðið og snýr sér að kaffidrykkju og kandísmolasogi.   

 


Joakim von gullrass

ra ra ra ra ra ra  - ef þið hafið ekki fattað það ennþá þá er raraið í byrjun þessarar litlu, en afar nauðsynlegu bloggfærslu minnar, upphafsraið úr laginu " Ef ég væri rikur "  lag kommúnistafiðlarans sem dreymdi drauma um peninga og völd uppá þaki á öreigabústað, á rússneskum síðkvöldum.  Og ef ég bæti nú einu rai við þá er það upphafsraið í laginu hans Johns L sem var að kveikja í útí Viðey í gær. Hann var kommúnisti eins og Tevje, en ríkur kommúnisti sem er afar sjaldgæft. Við fórum nokkra hringi yfir Viðey áður en stefnan var tekin á Cayman. Það var nú dálítið flott að sjá ljósastaurinn úr þotunni en það munaði reyndar litlu að við flygjum á Esjuna því eitthvað ruglaði ljósastaurinn þann svarta sem ég réð fyrir nokkru. Hann heitir Abu Hassan Halimal Kunda og fékkst fyrir slikk. Ég þarf nú samt að láta skoða skírteinið hans aðeins betur því hann er að villast aðeins. En af því að ég var nú að raula kommúnistasönginn um að vera ríkur, þá hafði ég aldrei þörf fyrir slíkar draumfarir. Kallinn var kaupfélagsstjóri, með mikil völd. Hann bjó til útgerð nokkrum árum fyrir kvótalög og bjós svo til litla sæta gulldrengurinn hann Jóakim von gullrass sem kom í heiminn stuttu síðar.  Ég vil uppfræða ykkur smámaurana sem hafið Tevjeskar draumfarir, um mikilvægar líffræðilegar staðreyndir. Menn hafa það í genunum að vera ríkir. Þetta hefur verið vísindalega sannað. Þeir sem eru ríkir hugsa öðru vísi, borða öðruvísi, drekka öðruvísi,elska öðruvísi og að sjálfsögðu eyða peningum öðruvísi. Ég var til dæmis alveg með þetta í genunum, svona leiðtogatýpa sem var með hirð af undirmálsmönnum í kringum mig alveg frá því ég man fyrst eftir mér. Þess ber að geta að nóg var af slíku fólki þaðan sem ég kom. Karlinn átti krummaskuðið og réð  hvort menn hefðu í sig og á, vel staðsettur í miðju stjórnmálanna, dáður af frömmurum og hefði örugglega farið langt í stjórnmálum hefði hann ekki verið fullur frá morgni til kvölds.  Ekki að það kæmi að sök þar sem hann réð öllu, átti allt og gat þar af leiðandi gert það sem honum sýndist.  Allt varð að gulli í höndunum á honum og þannig er mitt líf í dag. Ég má varla snúa mér við þá klingir einhversstaðar í krónu. En auðvitað kemur þetta ekki átakalaust. Ég er stöðugt á ferðalögum til að kaupa bréf og það tekur vissulega á. Ég hélt til dæmis að mitt síðast væri runnið upp þegar djöfulsins atgangurinn í kringum orkufélagið, Græna risann eða hvað það nú heitir sem unglingurinn hann Bjarni ætlar að reka, fór af stað. Ég flaug heim fyrir viku, tilbúinn í slaginn með fullt af klinki til að kaupa og þá verða kommarnir í borginni kolvitlausir útaf smáaurum til lykilmanna. En það er sem betur fer búið að snúa onaf þessari vitleysu, allir sáttir, ég búinn að kaupa vel af bréfum og farinn í sólina. En af því að allt er nú uppá borðinu hjá mér og engin leyndarmál í gangi þá má ég til með að segja ykkur eitt. Ég er búinn að sækja um einkaleyfi fyrir nafninu Ísland, svona incase. Mér finnst það líka bara viðeigandi þar sem við eigum fiskinn, erum að verða búnir að kaupa allt landið með fylgihlutum, eigum alla peningana, erum með megnið af fólkinu veðsett uppfyrir haus, þannig að það er stutt í eháeffið. ra ra ra ra ra ra ..


Fíkniefnalaust Ísland árið ...

Það eru ekki mörg ár síðan stjórnmálamenn boðuðu að landið yrði gert fíkniefnalaust og það innan nokkurra ára. Falleg hugsun en nokkuð úr samhengi við þann raunveruleika sem við búum við. Meðan markaður er til staðar fyrir vímuefni, verða þau í boði svo einfalt er það. Vímuefnamarkaðurinn skiftist í tvennt, þann löglega og þann ólöglega. Í báðum tilfellum er verið að selja dób og með því kveikja fíkn sem fólk höndlar misvel. Varðandi ólöglegu efnin þá trúi ég að Þegar einn er tekinn með nokkur kíló sé trúlega einhver annar að undirbúa innflutning á svipuðu magni og gert var upptækt. Hagnaðurinn freistar og markaðurinn bíður í ofvæni eftir efnunum. Löglegu fíkniefnin sem reyndar eru að kála fólki hægri vinstri og valda upplausn og rugli eru dáltíið stikkfrí þar sem það er samkvæmt lögum leyfilegt að neyta þeirra með litlum takmörkunum. Gegn hinum margumtalaða vímuefnavanda er trúlega sterkasta vopnið,  að gera efnin og áhrif þeirra sem minnst aðlaðandi.


Ravel og salernisóperan

Í gær góndi ég á Kastljós. Í lok þáttarins var boðið uppá tónlist að venju.  Í þetta sinn fengum við að hlusta á franskan píanóleikara sem flutti verk eftir Ravel. Magnað verk í frábærum flutningi eins fremsta Ravelssérfræðings í heimi. Áður en verkið var á enda runnið byrjuðu djöfls. titlarnir að rúlla yfir skjáinn og ekki nóg með það, sérfræðingurinn sem var að leika Ravel með þessum líka snilldarbrag fékk ekki að klára verkið.  Það var skorið af tónverkinu til að troða inn klósettlyktarauglýsingu. Trúlega er þetta einn agalegasti stemmingskiller sem ég hef upplifað fyrr eða síðar. Hafi ég nokkurntíma verið nær því að henda sjónvarpinu mínu útum gluggann, já eða drífa mig suður til að hitta einhverja í Efstaleitinu,  þá var það í gær. Kastjós er fínn þáttur og virðingavert að bjóða uppá lifandi tónlistarflutning í lok þáttarins, en það er algerlega óásættanlegt og í raun fullkomið virðingaleysi við þá listamenn sem koma fram í þættinum og þá ekki síður þá sem horfa og hlusta, að eyðileggja stemminguna með þessum hætti. Í guðanna bænum Rúvarar, takið á þessu og látið af þessum ósið.

Hvað klósetthreinsilyktarauglýsingarnar snertir þá eru þær eiginlega kapítuli útaf fyrir sig. Uppá síðkastið hefur þeim verið troðið fyrir fram og aftan og inní fréttatíma, fyrir framan Kastljós, inní Kastljós og eftir Kastljós, trúlega til að auka matarlyst landans.  Ekki er nóg að það sé verið að augýsa skítalyktareyði frá einu fyrirtæki heldur eru þau tvö sem berjast um auglýsingaplássið. Ég hvet fólk til að kaupa alls ekki þessar vörur. Þannig mætti hugsanlega koma í veg fyrir að þessum andskotans ófögnuði sé hent framan í okkur í tíma og ótíma. En hvað er ég að röfla...  það er takki á fjarstýringunni sem stendur á off,  asninn ég.


Dagbók Jóakims frænda

Kæra dagbók - mikið er ég eitthvað ánægður með lífið þessa stundina. Var að koma úr Caymanhvelfingunni að telja viðbótina sem ég fékk fyrir nokkur bréf. Nú sit ég einn með sjálfstraustið mitt ógnarsterka og fæ mér einn Glennfiddic á ís og sveran Kubana úr kælinum og nýt lífsins meðan öreiginn hann frændi minn skríður um í eymd og volæði á skítaskerinu sem við köllum fósturland eða eitthvað rugl. Ég hef nú ekki ennþá þorað að segja honum allan sannleikann um Rússlandsferðina sem ég lofaði að koma með honum í í sumar. Vissulega mætti ég á svæðið en það var bara af því að ég var blindfullur og til í allt. Var að koma úr afmælisveislu frá Kúbu þegar hann hringdi og minnti mig á Rússkí. Þegar rann af mér uppí Murmansk og ég sá skeggjaðan hermann með brjóst, ekki einn heldur marga, var mér ljóst að ég yrði að hypja mig hið snarast ef ég ætti ekki að enda í kommúnistahimnaríki að humpa með skeggjuðum hermönnum með brjóst. Svo illa var ég staddur andlega eftir þessa stuttu dvöl mína að ég varð að fara umsvifalaust í böð og stólpípur í Pladz. Lét sjúga mig aðeins á miðjunni og taka bauga í leiðinni. Öreiginn lét eins og ég hefði misst af einhverju þarna niðri á freðmýrinni, hringdi dag og nótt til að segja mér veiðisögur og meilaði á mig myndir af veiðihúsunum og börunum . En þetta er nú ekki allt. Skömmu síðar þegar ég náði þeim merka áfanga að verða hálfhundraðáragamall þá ákvað bankinn minn sem ég á að hluta til, að bjóða mér í lax til Íslands. Að sjálfsögðu var boðið í dýrustu laxveiðiána í heila viku. Auðvitað gat ég ekki sagt nei en bað sérstaklega um að ættarskömmin yrði fenginn til að koma með einhverja gutlara með sér og syngja fyrir frænda. En veistu hvað? þegar þeir báru upp erindið setti hann svo mikið upp að það fór alveg með þessa góðhjörtuðu menn. Þegar ég hringdi svo í hann alveg snarvitlaus, þá hló hann svo mikið að ég var farinn að sjá fyrir mér útför sem ég hefði þurft að mæta í eftir afmælið. Trúir þú þessum andskota sem á að heita skyldur mér. Hlær uppí opið geðið á mér og býðst til að útvega Geirmund, Bo eða Bubba fyrir slikk. Þetta á eftir að koma í bakið á raularanum get ég lofað þér. En þvílík veisla - ég var sóttur á Cayman af einkaþotu og um borð var þjónn sem fylgdi mér reyndar eins og skugginn alla vikuna. Helvíti flott að fá kampavín og kavíar við hylinn. Í veiðihúsinu voru nokkrir kokkar sem flogið var að sunnan og  þjónalið að stjana við mannskapinn. Og hverjir heldur þú að hafi mætt til að gleðja mig, nema þeir Bo og Bubbi, svona líka ægilega flottir með gítarara og sungu í marga, marga klukkutíma í sérstöku tjaldi sem komið var upp við aðalhylinn í ánni. Veistu hvað ég gerði í ótugtarskapnum - ha;?   ég hringdi í kommúnistann þegar Bubbinn söng Stálið og Hnífinn og Bo spilaði á munnhörpu undir og leyfði honum að heyra. Núna veit ég að ég gerði vitleysu með þessu því sú arga ótugt sem getur bara ekki verið skyldur mér, hafði reiknað mig út og tók allt saman upp á disk, líka röflið í mér. Svo hótaði hann að spila þetta í útvarpsþætti sem hann ætti aðgang að ef ég stæði ekki við framlögin sem ég lofaði fötluðum í góðgerðaræði hérna um árið. Það var ekki tekið með í reikninginn að ég hafði þá nýverið selt allt mitt hlutafé í Tryggingu ehf og Bátskel ehf en tapaði því jafnharðan í DeCode, en þá flutti ég í skjólið á Cayman. Ég veit ekki hvernig ég get nálgast þennan vonlausa frænda minn sem hlær að öllu sem ég legg til, gerir endalaust grína að öllu sem ég geri og er boðberi slæmra tíðinda fyrir okkur fjármálasnillinga. Hann reyndar tifar á því í tíma og ótíma að ég sé uppáhaldsfrændinn hans, en það er ekki eins og hann sýni það í verki. Hann sendir mér reglubundið póst og segir mér frá öllu sem miður fer í fjármálaheiminum á Íslandi og mærir sérstaklega alla þá sem vilja koma í veg fyrir  framsókn okkar auðmanna. Núna síðast sendi hann mér link á fréttina um  lyfjadrengnum þarna Vessmann eitthvað, strípustráknum á Harleynum, sem af góðseminni einni lagði einn og hálfan milljarð í einkarekinn háskóla í Reykjavík. Hvað er að slíku. Hvað er að því að eiga skóla, jarðir, fyrirtæki, landið allt, ef það hjálpar lýðnum í eymdinni. Það er alveg stórkostlegt þegar menn finna það upp hjá sér að henda nokkrum krónum í mál eins og hann Vessmann er að gera. Öreiginn benti mér reyndar á að það væri heldur stuttur listinn yfir fögin sem væru kennd í skólanum,viðskiptafræði, hagfræði og lögfræði en halló, ekki fer nú einkarekinn menntastofnun að kenna einhverjar grasafræðir.

Ég verð að segja þér eitt að lokum, toppsíkrít. Ég er að hugsa um að kaupa Vestmannaeyjar af honum þarna þyrlukallinnum í Tojóta. Ég luma nefnilega á bráðskemmtilegri viðskiptahugmynd sem myndi gera okkur auðmennina ofurglaða. Í stað þess að búa til göng eða byggja brú til Eyja eins og Árni J. vill gera, þá vil ég flytja Eyjarnar til Reykjavíkur með lunda og öllu. Þetta er alveg hægt, kosta mikið en ágóðinn yrði ægilegur. Ég yrði að byggja sérstakan hvelfingu á Cayman undir gróðann. Hugsaðu þér, Heimaey á Sundunum. Stál og hnífur er ra ra ra..

  


Dagbók Joakims von Uberfart

Kæra dagbók. Í dag ætla ég að taka í rassgatið á honum frænda mínum á Íslandi.

Kæri frændi. Þú eins og aðrir Íslendingar, gengur ekki alveg á öllum. Hvernig þið djöflist á okkur ríka fólkinu fyrir það eitt að græða krónu hér og krónu þar er alveg óskiljanlegt. Ég segi að þetta sé öfund og ekkert annað, þið eruð glóandi í framan af öfund yfir því hve vel okkur vegnar. Sjáðu mig til dæmis.  Ég er svo ríkur að ég hef ekki hugmynd um það, kannski ekki alveg eins ríkur og Abromovís olíukrani og ekki alveg eins ríkur og Thors hvað hann nú heitir aftur og kannske ekki alveg eins og þarna Kaupþings maðurinn sem er að byggja vínkjallara uppí við Glanna. Ég heyrði að hann hafi byggt húsið útyfir fossinn þannig að hægt sé að drekka rauðvín og dorga fram af svölum í leiðinni. Það er þetta sem er að fara svon agalega oní ykkur, beinaber öfund, yfir því að einhverjir hafi efni á að byggja sér nokkur hundruð fermetra rauðvínsgeymslu, kaupa snekkju, flugvél og annað nauðsynlegt. En fyrir þín eyru aðeins, kaupþingarinn verslaði jörðina af mér, þú veist að ég á margar jarðir á Íslandi, rosalega margar jarðir. Nú vissir þú það ekki?  jæja núna veistu það. Ég er búinn að kaupa yfir hundrað jarðir út um allt Ísland. Bráðum á ég allt landið og hvar ætlar þú þá að veiða andskotinn þinn. Já ég segi það bara aftur og stend við það. Hvernig í heitasta helvítinu væri umhorfs á Íslandi ef Dabbi Seðill Seðill oh vabb vabb vabb og Friedmankórinn hefu ekki náð að frelsa þjóðina undan sósíalistaofstækinu og þá hann Dóri, guð ég ætla að láta byggja styttu af Dóra fyrir utan svefnherbergisgluggan á Cayman, læt hann halda á þorski í annarri og Búnaðarblaðinu í hinni. Hugsaður þér ef þessir framsýnu menn hefðu ekki gert allt þetta fyrir okkur. Það er svo agaleg tilhugsun að ég þarf að gera stutta kúnstpásu -   ok ra ra ra ra, hvar vorum við já já, sumir eru fátækir og verða það alltaf, aðrir eins og ég erum ríkir, ofsalega ríkir og þurfum stöðugt að vera á verði svo einhverjir illa hugsandi einstaklingar komi ekki og steli öllu frá okkur. Það hefur oft gerst í mannkynsögunni. Mannstu t.d. hann Maó, ljóta Maó, já eða helvtítis bolsana sem drápu keisarann sem var svo góður og ríkur að orð fór af. Ég veit að það eru nokkrir heima sem vilja taka þetta allta saman af okkur,skölóttir kommúnistar og fleiri hávaðaseggir. Það er þessvegna sem ég er ég ekkert að koma of mikið heim, nema þessar tvær vikur í lax, það er þessvegna sem ég hef flutt allan peninginn minn til Cayman.

Kæra dagbók, ég verð einhvernveginn að snúa honum frænda mínum til betri vegar, annars fer þetta að verða vandræðalegt fyrir ættina. Hvað get ég gert?  ég er búinn að bjóða honum bréf fyrir lítið, góða stöðu í The Joakims , en helvítið býður mér á móti að ég afhenda honum öll auðævi mín, hann muni sjá um að koma þeim til eigenda sinna.  Hvað fór eiginlega úrskeiðis með drenginn.


Nú fer ég bráðum að safna liði

Ég var að ræða við hann Adam vin minn sem er flúinn land, nei fyrirgefiði fluttur burt af skerinu tímabundið. Hann fór til Kanada með frú og börnum, fékk sér ársleyfi frá störfum og er strax byrjaður að fjarstríða mér. Í dag hringdi hann í mig úr tölvusímkerfi sem kostar næstum ekkert að hafa aðgang að, eða 10 evrur fyrir árið. Með því getur maður hringt út um allan heim laus við  reikninga sem ætti að merkja með tveimur rauðum höndum eða öllu frekar með orðunum Símreikingar geta valdið ótímabæru andláti eða varanlegri geðveiki  Svo sagði Adam mér að það væri 30 stiga hiti í Kanada og meðan hann lýsti dásemdunum skaust uppá framheilabreiðtjaldið  mynd af Sigga stormi boðandi kulda og snjó í fokking september. Ekki lét vinur minn við svo búið sitja heldur fór að  nefna verðlag í Kanada. Byrjaði á svínasteikum og síðan nautamörbráð. Reiknigsheilinn minn fékk út að fyrir andvirði þess sem hann borgaði fyrir kræsingarnar oní fjölda manns, gæti ég hugsanlega keypt mér tvær mjólkurfernur. Seinna um daginn eftir símtalið við Adam vin minn fór ég í hjálpræðisbúð þeirra Bónusmanna þ.e. þá fínu sem er aðeins dýrari en lágvöruhjálpræðið með svíninu, keypti mér ofurlítið í körfu og borgaði fyrir það 5600 kall. Fyrir þá upphæð sýnist mér í fljótu bragði að ég gæti framfleytt mér, fjölskyldunni og fólkinu í næsta húsi í nokkra daga þ.e. ef ég drifi mig til  Kanada. Hjá mér vaknar sú spurning, hversu lengi við Íslendingar ætlumað taka við blautum tuskunum sem slengt er framan í okkur nokkuð reglulega eða hvort við ætlum að gera eins og Frakkar þegar þeim ofbýður verðlag, laun og fleira sem gott er að hafa í lagi,  og segja hingað og ekki lengra.  Getur verið að þrælslundin sé svo gróin inní genin okkar , að við beygjum okkur ómeðvitað í hnjánum og bjóðum botninn ef valta á yfir okkur. Hvar er allt góðærið, sem verið er að auglýsa svo grimmt. Skyldi hamingjusamasta þjóð í heimi vera svona hamingjusöm vegna þess að megnið af öllu því sem hún telur sig eiga er í eigu fjármálastofnana í fjandans nafni. Það er svo auðvelt að ná í fé í dag að ef þú ert fær um að stama upp nafninu þínu, þá færðu lán, hvað þá ef þú getur skrifað það. Huggulegir strákar í jakkafötum, allir eins, sitja í stórverslunum og falbjóða hamingjuna  og framlegðarhópurinn stækkar og stækkar og minnir óhuggulega á klóna í framtíðarhrollvekju.

Nú fer ég að safna liði og gera léttvopnaða byltingu, er einhver memm.


Bréf frá Jóakim von Hommosappiens

Cannes France 2009

Kæri frændi. Oft hefur kjamminn hrapað í gólfið en aldrei meir en nú, ættarillgresið þitt. Ég meira að segja missti sniglana sem ég var að éta út um allt lyklaborð og sletti kampavíninu á nýja kjólinn hennar Dasy sem ég fékk lánaðan í smástund. Þú veist hvað ég á það til að vera þunglyndur yfir óréttlæti heimsins, sérstaklega þegar verið er að abbast útí okkur velefnafólkið, sem er æði oft. Á slíkum stundum lauma ég mér  inná þessar bloggbullsíður í leit af einhverju uppbyggilegu fréttaefni, eins og samruna fyrirtækja eða vinalegum yfirtökum, eitthverju sem gæti lyft honum Kimma frænda uppfyrir viskíglasbarminn.  En, neei, ekki aldeilist!  Nú er þar allt útbíað í spurningum um hvort hommar og lessur megi giftast og hvort einhverjir Jésúskallar í kjól megi segja já og amen þannig að sé hægt að fara heim og hommast í Jesúnafni amen. Hver sjálfur andskotinn stýrir þessari vitleysu eiginlega?  Alveg örugglega ekki Krissi kaldi frá Nánasareti. Hvaða heilvita manni dettur í hug að Krissi, sem gekk ef ég man rétt í kjól og fór í lagningu til Maju M,  hefði farið að setja útá það þó menn hommuðust obbolítið?  Allt gengur þetta nú útá það sama, að hafa það gott og gaman, saman og það boðaði Krissi staðfastlega út um alla Afríku. Reyndar djöflaðist Krissi kaldi á kaupsýslumönnum sem ég tel að hafi verið afar vafasamt framferði. Hugsaðu þér, ef hann hefði í stað þess að rífa endalausan kjaft við þá sem réðu og áttu pening, keypt sér rómversk hlutabréf og lagst í kaupsýslu. Þá væri staðan önnur og betri í dag. Í stað forljótra steinkirkja væru glansandi kauphallir fullar af hamingjusömu og trúræknu fólki sem kæmu þar á hverjum degi eða væru í það minnsta í tölvusambandi á hverjum degi.  Vá - nú er ég djúpur frændi og verð að segja bless.

Hm;  hvað gæti þetta annars heitið -  Rómversk kaþólska fjármálakirkjan eða Evanelíska hlutabréfakirkjan eða, já vá,  svo mætti syngja Seðil seðil sibb vabb vabb vabb við altarisgöngur ...


Han frelser

Fyndið hvað við maurarnir sem byggjum þetta aggapínuponsulitla sandkorn sem þeytist um alheiminn á alltof miklum hraða fyrir okkar eigið ágæti, erum bilaðir. Hvert sem litið er, hvar sem borið er niður, erum við litlu krílin að undirbúa eitthvað sem  felur í sér óhamingju fyrir næsta maur. Nýjustu fréttir af broskallinum sem stjórnar málum í USA er að undirbúningur fyrir næsta byssubardaga sé í fullum gangi. Hvað gerði guð vitlaust þegar hann hrærði steypuna í kallinn og gengið hans, spyr ég bara. Reyndar segist Búss vera í beinu sambandi við almættið ásamt flestum þeim sem honum fylgja að málum. Það má ekki gleyma því að það var nú einu sinni eitt af frummarkmiðum hugsuðanna hans Búss að gera Íslamista í Írak að Jésusbörnum þegar búið væri að sópa göturnar í Bagdad. Eftir mikið stríð í áraraðir eru Bússarar sannfærðir um að allt blóðbaðið hafi verið ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir lýðræðið í hinu nýja Írak. Þeir trúa því statt og stöðugt að ástandið sé betra en það var fyrir nokkrum árum. Til að fá úr því endanlega skorið þá ætti að bjóða liðinu í huggulegt tveggja vikna lýðræðisfrí til Írak og fáum þau svo í viðtal hjá þeim á 60 min þegar heim væri komið. Þau gætu skoðað sig um í miðbæ Bagdad, skroppið í búðir,fengið sér Big Mac eða KC og sleikt sólina. Hitt fólk á förnum vegi, spjallað um Jesús og dreift bæklingum um hina nýju trú.

Það hlýtur að vera skýlaus krafa alþjóðasamfélagsins héðan í frá að allir sem vilji stjórna þjóðlandi, fari í stíft gáfnapróf og séu síðan ef þeir nái yfir meðallag, sálgreindir af færustu sérfræðingum og alls ekki settir í embætti ef þeir haldi því fram að guð hafi skapað heiminn á sléttri viku. 


Bréf frá Kimma

Sæll ættaógn. Ég lenti heldur betur í því þegar ég flaug frá Múrmansk um daginn  .. ég hafði varla rennt niður einum köldum þegar við vorum umkringdir herþotum og neyddir til að lenda á einhverjum ógeðslegum herflugvelli. Þar tóku á móti okkur hermenn gráir fyrir járnum. Okkur var hent inní einhverja skítaholu þar sem við máttum dúsa í góða stund áður en við vorum kallaðir fyrir. Við heimtuðum að fá að hringja í allar áttir en það var ekki tekið undir neitt slíkt. Allir okkar pappírar voru síða skoðaðir og flugmaðurinn beðinn um að anda framan í næsta mann. Eftir að hafa andað um stund var okkur sleppt. Meira vesenið  - flugmaðurinn sem er frá Kululalumpur eða einhverju svoleiðislandi, þurfti áfallahjálp þegar við fundum að endingu flugvöll til að lenda á. Hljóp í hringi eins og hauslaust hæna og talaði tungum. Hann taldi sig vera að lenda í Englandi en ekki aldeilis -nú sit ég í sánu í Finnlandi með finnskan í glasi ,rauður á rassinum eftir hrísvöndinn og bíð eftir öðrum flugmanni, því að sjálfsögðu rak ég þenna fávita. En svona er nú lífið vinur fullt af óvæntum uppákomum. Ég er nú að fylgjast aðeins með þjóðmálunum um leið og ég les viðskiptablöðin og kíki á bloggbullið. Og veistu ættararðan þín, ég held að þið séuð að missa það svona upp til hópa. En segðu mér meðan ég man, af hverju fékkstu ekki að vera með á vellinum um daginn með kónginininum og Einari Bárða í stað þess að vera að væla á einhverrin niðurgreiðslu á klambranum. Einar Bárða er nú kompaní sem þú ættir að hengja þig á. Ég er með það á hreinu ef ég myndi borga honum nóg, þá myndi hann gera úr mér súpersöngvara á augabragði.  Annars sýnist mér Búbba bara taka þetta allt saman, alveg sama hvar hann ber niður, verbúðir, hagkaup,einmana mæður, bankar og lax. Stál og hnífur er ra ra ra, af hverju gast þú ekki farið að syngja um svoleiðis, ha?  þú varst nú í fiski í gamla daga og vannst á vöktum í síldarverkssmiðju, drakkst eins og djöfull og varst nettur hryðjuverkamaður. Þú ert alveg ómögulegur frændi en ég verð víst að láta þig duga, annað er ekki í boði.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband